Þú tekur saman yfirlit yfir allt sem þú kannt, byggir skýra ferilskrá á því og skrifar kynningarbréf sem er stílað á starfið
sem þig langar í.
Allt á einu kvöldi,
án þess að stara á autt blað.

Þarftu að uppfæra ferilskrána þína? Kannski er langt síðan síðast. Kannski fannstu starf sem þig langar í og umsóknarfresturinn rennur út á föstudaginn.
Þú opnar skjalið, skrifar nafnið þitt efst og festist. Hvað á að fara inn?
Hvernig orðarðu það sem þú gerir á hverjum degi? Og hvað segirðu í kynningarbréfinu sem öll hin segja ekki líka?
Þetta virðist miklu flóknara en það ætti að vera. Svo þú frestar því. Aftur.
Eftir eina kvöldstund ertu með yfirlit yfir menntun þína, reynslu og hæfni, með dæmum
sem sýna hvað þú getur.
Á því byggirðu skýra ferilskrá sem þú notar í hverja umsókn. Og þú skrifar kynningarbréf sem er stílað á starfið sem þig langar í,
tilbúið til sendingar.
Næst þegar þú sérð spennandi starf tekur umsóknin innan við klukkutíma, ekki heila helgi.
Yfirlitið mitt, myndband og vinnublað. Þú tekur saman menntun, reynslu og hæfni, með dæmum. Svo þú gleymir ekki helmingnum af því sem þú kannt.
Ferilskráin byggð upp, myndband og sniðmát. Skýr ferilskrá þar sem hæfnin þín sést strax.
Kynningarbréfið, myndband og sniðmát með dæmum um sterkar opnanir. Svo þú skrifir ekki það sama og öll hin og getir lagað bréfið að næstu umsókn á 30 mínútum.
Gátlistinn „Áður en þú ýtir á senda“. Svo engin vandræðaleg villa fari með umsókninni.
eirmod tempor invidunt ut labore et dolore magna aliquyam erat, sed diam voluptua
Þú færð aðgang strax og getur byrjað í kvöld.

Það sem fólk segir eftir að hafa fengið aðstoð við ferilskrána:
„Ég hélt að þetta væri miklu flóknara.“
„Þetta var auðveldara en ég hélt.“
„Það var frábært að fá þessa aðstoð við að skrifa
ferilskrána og lesa yfir.“
Frá fólki sem ég hef aðstoðað
þú hefur ekki uppfært ferilskrána í mörg ár og veist ekki hvar þú átt að byrja
þú vilt skipta um starf eða ert nýbúin/n/ð að bæta við þig námi
þú sérð spennandi störf en sækir ekki um af því að umsóknin vex þér í augum
þú vilt aðferð sem dugar í næstu umsóknir líka, ekki bara þessa einu
Þetta er ekki fyrir þig ef þú vilt að einhver annar skrifi ferilskrána fyrir þig. Hér gerir þú vinnuna, með skýrum skrefum og sniðmátum og það tekur eitt kvöld.
Ég heiti Hrönn og er náms- og starfsráðgjafi með háskólamenntun í faginu. Í 26 ár hef ég leiðbeint fólki á öllum aldri: nemendum í grunn-, framhalds- og háskóla og fullorðnum í endurmenntun.
Á þeim tíma hef ég séð ótal ferilskrár. Vandinn er sjaldnast uppsetningin. Vandinn er að fólk veit ekki hvað það á að setja inn og gleymir helmingnum af því sem það kann.
Þess vegna bjó ég til þessa aðferð. Fyrst tekurðu saman yfirlit yfir allt sem þú hefur fram að færa. Svo kemur ferilskráin nánast af sjálfu sér.
